Íslenska   English   Deutsch   Fransaise    Chinese
Rútur og Hópferðir Guðmundar Tyrfingssonar

 


Álfar og Tröll  á Icelandic Wonders
Icelandic Wonders Upplifið heimkynni álfa og trölla og sjáið norðurljósin í allri sinni dýrð. Meira


Draugasetrið á Stokkseyri 
hýsir þekktustu drauga á Íslandi. Meira


Aurora Experience  Upplýsingar um Norðurljósin  og Norðurljósa DVD.Meira

Veislusalir til útleigu
Lista og Menningarverstöðin
Veislusalir til útleigu 
Meira

Home > Öryggismál     


FORSÍÐA

HÓPFERÐIR


RÚTURNAR


SUÐURLAND

UM OKKUR
STARFSEMIN
ÖRYGGISMÁL
UMHVERFISSTEFNA
SAGAN

ÍSLENSKAR YFIRBYGGINGAR
DODGE WEAPON
LEYFI
BAKVAKT
STARFSFÓLK
MYNDASAFN
FRÉTTIR



Öryggismál

Öryggisstefna Guðmundar Tyrfingssonar ehf

Starfsmenn Guðmundar Tyrfingssonar ehf. hafa mótað öryggisstefnu og sett sér markmið til að tryggja að öryggi og þægindi farþeganna sé ávallt í fyrirrúmi. Þegar ný rúta er hönnuð og smíðuð hugsum við um hvernig hægt sé að auka þægindi og tryggja öryggi. Rútuflotinn er með þeim yngsta sem þekkist á landinu, markmið okkar í öryggismálum er að vera með góða og trausta bílstjóra, nýjustu bílana ásamt því að tryggja öryggi og þægindi eins og kostur er.

Bílstjórinn:
Það er ekki tilviljun að bílstjórinn sé fyrst talinn upp þegar öryggi er annars vegar. Öllu máli skiptir að hafa góða og trausta menn, sem geta tekið á hvaða aðstæðum sem er. Frá upphafi (1969) hefur fyrirtækið haft yfir einstaklega góðum starfskröftum að ráða sem tvímælalaust skýrir velgengni fyrirtækisins í gegnum árin. Við leggjum ríka áherslu á hæfni starfsfólks og áreiðanleika ásamt því að veita bestu starfsþjálfun sem við höfum tök á.

Fyrirbyggjandi viðhald:
Á verkstæði okkar starfa þaulvanir menn sem sjá um smíði á nýjum bílum ásamt öllu viðhaldi. Lagt er kapp á að viðhald sé fyrirbyggjandi og er haldin skrá yfir bílana til að hafa sem besta yfirsýn. Hópferðabílar okkar eru hannaðir og smíðaðir af starfsmönnum okkar og eru öryggismál í hávegum höfð í öllu þessu ferli.

Bremsukerfi:
ABS bremsukerfi er í nær öllum hópferðabílum fyrirtækisins en slíkt eykur öryggi til muna, sérstaklega í bleytu og hálku. Mikil áhersla er lögð á að bílarnir séu ávallt rétt útbúnir miðað við aðstæður t.d að hjólbarðar séu í samræmi við færð en yfir vetratímann eru þeir á negldum hjólbörðum.

Öryggisbelti:
Í öllum okkar hópferðabílum eru öryggisbelti í öllum sætum annað hvort tveggja eða þriggja punkta belti.

Öryggismál:
Okkar markmið með þessari stefnu er að vinna markvisst að því að öryggi verði í hávegum haft og óhöpp eins fá og takmörkuð sem frekast er unnt. Á hverju ári er haldið öryggis- og umhverfisnámskeið fyrir alla starfsmenn þar sem farið er ítarlega í þessa málaflokka. Á öryggisnámskeiðinu er m.a. fullgilt skyndihjálparnámskeið með fullgildum leiðbeinanda ásamt því að farið var sérstaklega yfir öll öryggistæki sem tilheyra bílstjóra og farþegum. Námskeiðahald þetta er fastur liður á hverju ári.

 



Til baka