|
Óvissuferðir njóta sífellt meiri vinsælda með hverju árinu sem líður og hafa starfsmenn G. Tyrfingssonar ehf oftar en ekki aðstoðað fólk við skipulagningu óvissuferða.
Hver hópferð er löguð að aldri, áhugasviði og stærð hóps og hentar á þann hátt öllum hópum.
Ýmis afþreying er í boði sem hægt er að nota til að púsla saman hinni skemmtilegustu óvissuferð, sem dæmi má nefna kajak ferðir, heimsókn í brugghús, fjórhólaferðir, hestaferðir, Ratleikir, Paintball, heimsókn í söfn og margt fleira.
G.Tyrfingsson ehf skipuleggur óvissuferðir út um allt land. Hér eru nokkur dæmi um tilbúnar ferðir.
Heimsókn í Flóann
Farið í heimsókn í Brugghús í Flóanum, helstu draugar í Flóanum heimsóttir, endað í Draugasetrinu og möguleiki á að skyggnast inn í framtíðina hjá spákonu.
Meira
Allir geta skemmt sér í þessari ferð! Ferðin byrjar á ævintýralegum ratleik um Hveragerði. Hópnum er skipt niður í lið sem keppast um að leysa þrautir. Samstarf og samvinna eru það sem þarf til að sigra daginn.
Meira
|
Upplifðu alvöru Sveitaævintýri ! Alvöru sveitaævintýri fyrir fyrirtæki, félög og hópa. Línudans, hópefli, heimabakað bakkelsi, hestaferðir og fleira.
Meira |
Heitasti smellurinn - kaldasti barinn
Safnið Icelandic Wonders er staðsett á Stokkseyri í sama húsi og Draugasetrið. Þar býðst gestum að ganga inn í heim álfa og trölla. Þar er hægt að skyggnast inn í líf þeirra og dagleg störf og heimsækja 200 m2 frysti þar sem norðurljósin leika stórt hlutvert. Þar er tilvalið að fá sér norðurljósakokteill í litum norðurljósanna.
Meira
|

Frá Reykjavík er ekin Nesjavallaleiðin og stoppað aðeins til að njóta fagurrar náttúru á leiðinni.
Þegar á Nesjavelli er komið taka hópeflissérfræðingarnir og stuðboltarnir í Adrenalíngarðinum við hópnum...
Meira |

Draugasetrið á Stokkseyri hefur vakið mikla lukku og í þessari ferð er það hápunktur ferðarinnar. Auk setursins höfum við þann möguleika að fara upp í Knarrarósvita sem einnig er skemmtileg lífsreynsla.
Meira
|