Tilvalið fyrir fyrirtæki til að þétta saman starfsmannahópinn. 30-300 manna hópar velkomnir.
Tillaga að ferð
Hópur sóttur á grænni og góðri rútu og ekið beina leið á Stokkseyri. Fordrykkur og móttaka á Draugabarnum, eða ísbarnum ef valið er fyrst að fara inn í íslenskan undraheim sem er um 1.200m² fermetra safn tileinkað álfum, tröllum og norðurljósum. Hápunkturinn er heimsókn í 200 fermetra rými þar sem er um 5-10 stiga frost. Þar er sannkallað vetrarríki, ísklumpar úr Vatnajökli, ísveggir og ísbar í einu horninu.
Þá næst er valkostur að heimsækja Draugasetrið en það er um 800 fm völundarhús þar sem gestir hlusta á draugasögur á leið sinni um safnið og kynnast þeim sem ganga aftur. Þetta eru 24 stuttar sögur og það tekur um 45 mín. að fara í gegn ef hlustað er á allar sögurnar. Hæfilegir reimleikar í boði hússins. Mjög góð móttaka er fyrir gesti áður en farið inn í setrið sjálft og þar er jafnframt Draugabarinn. Þegar komið er til baka úr Draugasetrinu inn á Draugabarinn er tekið hraustlega til matar að þorra sið.
Tilvalið er síðan að halda hópnum saman um kvöldið og styrkja starfsandann enn betur og enda góðan dag á dansleik á Draugabarnum. Brottför til baka þegar allir eru orðnir saddir og glaðir.
Viðbótarval
Veislustjóri: Sigurgeir Hilmarsson leikari eða val
Dansleikur með hljómsveit
Reimleikar í Draugasetri, um 800 m² völundarhús
Álfa-Trölla og Norðurljósasafnið
Pantanir og nánari uppl. eru veittar í síma: 5681410 / 4821210