Fyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson ehf fagnar um þessar mundir 40 ára starfsafmæli. Guðmundur Tyrfingsson ehf er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem rekið er af Guðmundi, Sigríði eiginkonu hans og börnum þeirra Benedikti, Tyrfingi, Berglindi og Helenu. Í dag býður fyrirtækið yfir fjörutíu hópferðabíla og er með rútur staðsettar á Selfossi, í Reykjavík, Þorlákshöfn, Flúðum, Hveragerði, Hvolsvelli og Höfn. Starfsmenn eru á bilinu 40-50 talsins á ársgrundvelli. Starfsmannafjöldinn er þó mismunandi eftir árstíðum og mun meiri yfir sumartímann.
Fjallaferðir voru í miklu uppáhaldi hjá Guðmundi og hann ákvað að kaupa sér bíl til að geta unnið við áhugamál sitt og farið í fjallaferðir með hópa. Hann keypti fyrsta bílinn til fólksflutninga 15. nóvember 1962. Þetta var Dogde Weapon, árgerð 1953 sem kom frá sölu Varnarliðseigna. Hann var notaður sem sjúkrabíll hjá hernum og var skráður fyrir aðeins tvo farþega auk ökumanns. Guðmundur lét breyta honum á verkstæði KÁ þar sem hann vann á þeim tíma. Þar voru settir í hann gluggar og smíðuð á hann hurð. Hann lagfærði síðan bílinn að utan og sprautaði hann gráan. Síðan klæddi hann bíllinn að innan og setti í hann sæti úr gömlum strætisvagni frá Hernum. Þessi bíll var atvinnuskráður 15. mars 1963 og upp frá því fór Guðmundur að stunda hópferðir samhliða annarri vinnu. Þennan bíl átti hann til 4. September 1964 en þá keypti Sandvíkurhreppur bílilnn. Bíll þessi hafði skrásetningarnúmerið X-718 meðan hann var í eigu Guðmundar.
Hann keypti annan Weapon af Varnarliðinu haustið 1964. Sá bíll var einnig sjúkrabíll frá hernum árgerð 1953 og skráður fyrir tvo farþega auk ökumanns. Guðmundir endurbyggði þann bíl frá grunni og breytti í hópferðabíl. Sett var nýtt gluggastykki í hann að framan, gluggar í hliðar og að aftan, hann breikkaður og smíðaðar í hann hurðir. Að öðru leyti var bílinn látinn halda upprunalegri mynd að utan. Hann klæddi bílinn að innan og setti í hann sæti sem hann fékk úr gamalli rútu frá KÁ. Þessi bíll var með bensín vél en Guðmundur setti í hann Ford diesel vél. Hann málaði Weaponinn loks grænan og hvítan og hefur sá litur prýtt rútuflota Guðmundar síðan. Þessi bíll bar líka númerið X-718 eins og sá fyrri. Þennan bíl átti hann í ein tólf ár en þá var hann seldur. Það var svo fyrir fáum misserum að bifreið þessi komst aftur í hendur fyrirtækisins. Hann hefur verið gerður upp að nýju og prýðir nú höfuðstöðvar fyrirtæksins á Selfossi.
Þann 30. september 1969 var fyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson ehf formlega stofnað og sama ár fór fyrsta heimasmíðaða rútan á götuna. Það var grind undan Benz vörubíl árgerð 1967 sem Guðmundur lét smíða yfir að hluta á verkstæði KÁ. Vörubíllinn hafði oltið og húsið á honum eyðilagst. KÁ sá um að smíða grindina á yfirbyggingunni en síðan tók Guðmundur við og kláraði bílinn að utan og innan ásamt Guðmundi Laugdal og Braga Bjarnasyni. Þetta var 30 farþega rúta sem kom á götuna vorið 1969.
Árið 1971 sneri Guðmundur sér alfarið að rekstri fyrirtæksins og sama ár keypti hann bragga af Keflavíkurflugvelli og reisti hann við Nónhóla á Selfossi. Guðmundur Laugdal Jónsson gekk til liðs við nafna sinn árið 1973. Í bragganum voru smíðaðir 14 hópferðabílar til eigin nota auk ýmissa annarra verkefna. Þar voru unnin mörg þrekvirkin og ber þar helst að nefna smíði á 62 farþega rútu árið 1987 sem rétt rúmaðist í húsnæði braggans. Var því fleygt fram að þetta væri sennilega minnsta rútuverksmiðja í heimi.
Árið 1992 var byggð ný aðstaða fyrir starfsemina að Fossnesi 5 Selfossi. Árið 1993 flutti fyrirtækið í það húsnæði og jafnframt var stofnað dótturfyrirtækið Tyrfingsson ehf sem sér um smíði og viðhald á hópferðabifreiðum Guðmundar Tyrfingssonar ehf. Fyrirtækið hefur smíðað yfir u.þ.b. 30 nýja bíla frá grunni en auk þess hafa fjölmargir minni bílar verið innréttaðir sem hópferðabílar.
Umhverfis- og öryggismál hafa frá upphafi verið fyrirtækinu hugleikin. Guðmundur Tyrfingsson ehf var fyrsta hópferðafyrirtækið til að móta umhverfis- og öryggisstefnu sem höfð er að leiðarljósi í rekstri fyrirtækisins. Ferðaskipulagning hefur alla tíð fylgt þessum rekstri og hefur þáttur hennar aukist til muna síðustu ár. Fyrirtækið býður upp á ýmsar ferðir, til lengri eða skemmri tíma bæði fyrir íslenska og erlenda ferðamenn.