
Guðmundur Tyrfingsson ehf hefur keypt 100 barnabílstóla af barnavöruversluninni Ólavía og Ólíver.
Um er að ræða gæða bílstóla frá hinu þekkta merki Nania sem eru hannaðir fyrir börn frá 1-12 ára eða 9-36 kg. Þeir eru því sérstaklega hugsaðir fyrir leikskólahópa og yngri bekki í grunnskólum.
Guðmundur Tyrfingsson ehf hefur ávallt lagt mikla áherslu á öryggi farþega og var fyrsta hópferðafyrirtækið til að hafa öryggisbelt í öllum sætum. Fyrirtækið er nú með fjölmargar rútur með þriggja punkta öryggisbeltum eða yfir 900 farþegasæti. Þriggja punkta öryggisbelti eru enn öruggari en tveggja punkta beltin og eru barnabílstólarnir hannaðir fyrir þriggja punkta belti.
Nánari upplýsingar