Hafa Samband

482 1210 / 568 1410

 Follow GTTravelTours on Twitter

Lesa frétt

11.5.2011

Vel heppnuð ferð til Kína

KínaferðÁ dögunum komu þeir Tyrfingur Guðmundsson og Magnús Davíðsson, starfsmenn Tyrfingssonar ehf sem sér um allt viðhald á bílaflota Guðmundar Tyrfingssonar, heim úr vel heppnaðri ferð frá Kína.

 

Ferðin var fyrst og fremst farin til að til að sitja námskeið og auka þekkingu á þeim rútum sem Tyrfingsson ehf þjónustar fyrir Yutong rútur á Íslandi.

 

Magnús og Tyrfingur hlutu diploma fyrir að uppfylla öll skilyrði til að sinna viðhaldi og viðgerðum með vottun frá Yutong í Kína. Einnig stóðust þeir öll próf og uppfylltu öll skilyrði til að kalla sig þjónustuaðila fyrir Yutong rútur og hafa fengið skjal þess efnis.

 

Ferðin var líka nýtt til að fylgja eftir rútum sem voru að koma úr framleiðslu hjá Yutong og Guðmundur Tyrfingsson ehf hefur keypt og von er á nú á vordögum. Var rútunum meðal annars reynsluekið og farið yfir þá hluti sem mögulega þyrfti að breyta til að standast að fullu okkar kröfur og  fyrir Íslenskar aðstæður.

 

   
YN-Z61 - Rútur Guðmundur Tyrfingsson ehf
YN-Z61 Rútur Guðmundur Tyrfingsson ehf
 Kínaferð  Kínaferð
<<til baka