Sveitarfélagið Árborg hefur samið við Guðmund Tyrfingsson ehf. á Selfossi um skólaakstur fyrir sveitarfélagið að loknu útboði.
Í haust bauð Árborg út akstur í þremur þáttum, það er skólaakstur, akstur vegna ferðaþjónustu fatlaðra og fyrir notendur dagdvalar aldraðra og loks ýmsan tilfallandi akstur fyrir félagsmiðstöð og fleira.
Fyrir skömmu var gengið frá samningi milli Árborgar og Guðmundar Tyrfingssonar ehf um skólaakstur fyrir sveitarfélagið.