Sveitarfélagið Árborg og Guðmundur Tyrfingsson ehf hafa gert með sér samning um akstursþjónustu vegna ferðaþjónustu fatlaðra og fyrir notendur dagdvalar aldraðra, auk ýmiss tilfallandi aksturs fyrir skóla, leikskóla og félagsmiðstöð.
Samningurinn tekur gildi um áramót og er gerður í framhaldi af útboði á akstri fyrir sveitarfélagið sem fór fram s.l. haust.
