Þessa stundina eru þrjár nýjar rútur á leiðinni til landsins og bætast þær við rútuflota Guðmundar Tyrfingssonar ehf.
Um er að ræða tvær nýjar 41 sæta lúxusrútur frá Yutong í Kína og einn nýjan Mercedes Benz Sprinter 4x4, 19+1 sæta.
Lúxusrúturnar tvær eru óvenju vel útbúnar og með ýmsum betri útfærslum en þær sem fyrir eru, en Guðmundur Tyrfingsson ehf hefur verið með tvær aðrar rútur frá Yutong síðan 2009.
Rúturnar kom með nýjustu vélinni frá Cummins sem uppfyllir EURO 5 mengunarstaðalinn sem er sá hæsti sem völ er á í dag.
Báðar rúturnar eru með leðursætum og góðu plássi fyrir farþegana, sjónvarpskjám, USB, og alveg nýju hljóðkerfi sem ekki hefur sést áður í sambærilegum bílum og er hljómurinn ótrúlegur.
Rútan sem kemur frá Mercedes Benz í Þýskalandi er nýr Sprinter 519 og er með fjórhjóladrifi.
Þessarri rútu verður breytt þegar hún kemur til landsins, sett í hann tvöfalt gler, sæti og fleira.
Til gamans má geta að framleiðandinn var svo ánægður með rútuna þegar hún kom úr verksmiðju að hann falaðist eftir því að fá hana lánaða í sumar til að fara með hann í sýningarferð um Þýskaland. Því þrátt fyrir að hafa boðið þennan möguleika í tvö ár hafði rútan aldrei verið framleidd sem er eins vel útbúin og þessi, með fjórhjóladrif, splittun, háu og lágu drifi.
Þessi viðbót kemur til með að bæta annars ungan og góðan flota og verður gaman að geta boðið þessar nýju rútur í sumar.
Við vonum svo að sem flestir landsmenn fái einnig notið þess að ferðast í þessum rútum í framtíðinni.