Íslenska English
Starfsfólk Guðmundar Tyrfingssonar ehf hefur mikla reynslu í að skipuleggja óvissuferðir og starfsmannaferðir hvert á land sem er.
Dæmi um ferðir: Ratleikir - Hópefli - Menningarferðir - Draugaferðir
Hver óvissuferð er löguð að aldri, áhugasviði og stærð hóps og hentar á þann hátt mismunandi hópum.
Dæmi um afþreyingu sem hægt er að púsla saman eftir því sem hentar hverjum hópi:
Kajak - Fjórhjól - Ratleikir - Paintball - Hellaskoðun - Söfn - Tónlistarupplifun - Línudans - Dekur - og margt fleira.
Hafðu samband og við sníðum ferðina fyrir þinn hóp.
Aparólan í Hveragerði er 80 metrar og er hægt að ná góðum hraða í brautinni.
Frábær ratleikur í Hveragerði.
Ratleikur með leikjum og þrautum sem miða að því að þjappa hópnum saman.
Farið í heimsókn í Brugghús í Flóanum, helstu draugar í Flóanum heimsóttir, endað í Draugasetrinu.
Upplifðu alvöru Sveitaævintýri !
Alvöru sveitaævintýri fyrir fyrirtæki, félög og hópa.
Línudans, hópefli, heimabakað bakkelsi, hestaferðir og fleira.
Garðurinn er frábær skemmtun fyrir alla hvort sem er fyrir fjölskylduna, vinahópinn eða vinnustaðinn og hér ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Draugasetrið á Stokkseyri hefur vakið mikla lukku og í þessari ferð er það hápunktur ferðarinnar. Auk setursins höfum við þann möguleika að fara upp í Knarrarósvita sem einnig er skemmtileg lífsreynsla.
Heitasti smellurinn
Safnið Icelandic Wonders er staðsett á Stokkseyri í sama húsi og Draugasetrið. Þar býðst gestum að ganga inn í heim álfa og trölla. Þar er hægt að skyggnast inn í líf þeirra og dagleg störf.