Draugaferðir

Draugaferð um Flóann

Meginþema ferðarinnar eru draugar og þjóðsagnapersónur en einn frægasti draugur allra tíma hér á Íslandi varð til á þessu svæði og lifir enn góðu lífi.

Draugasetrið á Stokkseyri

Draugasetrið á Stokkseyri hefur vakið mikla lukku og í þessari ferð er það hápunktur ferðarinnar. Auk setursins höfum við þann möguleika að fara upp í Knarrarósvita sem einnig er skemmtileg lífsreynsla.

Kampholtsmóri

Í þessarri ferð er nær eingöngu er fjallað um Móra á seinni árum eða á meðan hann bjó í Kampholti og Þingdal. Þessi ferð er sjálfstætt framhald af fyrri draugaferðinni og er ekið austur framhjá Kampholti og niður með Þjórsá. Eins og í fyrri ferðinni er stoppað á vel völdum stöðum og meðal annars er stoppað í Þingdal en þar bjó Móri til margra ára. Þetta er um þriggja tíma ferð ef allt er með felldu en reynslan hefur sýnt okkur að í þessum ferðum getur allt gerst.