Menningarferðir

Draugaferð um Flóann

Meginþema ferðarinnar eru draugar og þjóðsagnapersónur en einn frægasti draugur allra tíma hér á Íslandi varð til á þessu svæði og lifir enn góðu lífi.

Menningarferð um Flóann

Menningarferð þar sem tekinn er hringur um Flóann, farið í Ullarvinnsluna í Þingborg, kíkt á Urriðafoss, farið í Tré og List í Forsæti og Sveitabúðina Sóley í Tungu. Endað á Stokkseyri þar sem hægt er að heimsækja vinnustofur listamanna og kíkja í Draugasetrið, Álfa, Trölla og Norðurljósasafnið eða Veiðisafnið.

Kambsránssöguferð

Þetta er bráðskemmtileg ferð um Flóann þar sem söguefnið er eitt magnaðasta sakamál Íslandsögunnar. Fjallað er um aðdraganda ránsins, ránið sjálft sem og refsingar og örlög ránsmanna. Ekið er um söguslóðir og má segja að ferðin hefjist á þeim stað sem Kambsránsmenn hittust fyrir ránið.