Ratleikir

Ratleikir eru leikir þar sem notast er við vísbendingar, kort, kennileiti eða áttavita til að fara á milli staða og rata ákveðna leið. Leikurinn getur gengið út á það að leysa þrautir eða vekefni á hverjum stað sem farið er á eða einfaldlega vera fyrstur að fara leiðina.

Mismunandi ratleikir eru í boði

Þingvallagátan

Skemmtilegur ratleikur á fallegum stað.Þingvallagátan er bæði ratleikur og orðaleikur. Leikurinn berst um svæðið umhverfis þingstaðinn og lausn gátunnar krefst samhæfingu huga og handa meðlima samstillts hóps.

Akranes Ratleikur

Ratleikurinn á Akranesi hentar vel fyrir fyrirtækjahópa sem vilja kynnast nýju svæði í nágrenni Reykjavíkur og láta reyna á samvinnu hópsins.

Ratleikur í Hveragerði

Frábær ratleikur í Hveragerði með Iceland Activities.

Ratleikur með leikjum og þrautum sem miða að því að þjappa hópnum saman.