Safnið Icelandic Wonders er staðsett á Stokkseyri í sama húsi og Draugasetrið. Það er 1.200 m2 og býðst gestum að ganga inn í heim álfa og trölla. Þar er hægt að skyggnast inn í líf þeirra og dagleg störf.
Draugasetrið
Hægt er að bæta Draugasetrinu við og fara í framhaldi upp á efri hæðina. Draugasetrið er einnig frábær skemmtun en þar býðst gestum að ganga í gegnum um 1.000 m2 völundarhús og hlusta á 24 rammíslenskar draugasögur um leið og þeir ganga í gegnum ámóta umhverfi og sögurnar gerðust í og upplifa draugaganginn.
Draugabarinn
Draugabarinn er um 200 m2 að stærð með frábæru útsýni út á sjóinn. Þar er hægt að fá hressingu og er einnig möguleiki að hafa lifandi tónlist og slá upp dansleik fyrir hópinn.
Lista og menningarverstöðin (minni salurinn)
Í sama húsi og á sömu hæð og Draugasetrið er að finna frábæra hliðarsali. Þar er t.d. um 150 m2 salur sem er mjög fínn ráðstefnu- og fundarsalur með 150 m2 útipalli þar sem hægt er að anda sér fersku sjávarlofti. Í salnum er hægt að panta kaffiveitingar og léttari veitingar. Heitar vöfflur með rjóma vekja alltaf mikla lukku nú og/eða veitingar á bar eftir samkomulagi. Einnig er hægt að fá veisluþjónustu til þess að koma með veitingar.
Lista og menningarverstöðin (stóri salurinn)
Hér er um að ræða stóran og glæsilegan sal, rétt um 300 m2 með mjög stóru sviði. Í þessum sal er hægt að vera með 250-300 gesti í sæti hvort heldur sem er fyrir ráðstefnur, matarveislur eða dansleiki. Fjöldi gesta við borð er 250. Tilvalinn salur fyrir árshátíðina.
Nánari upplýsingar: gt@gtb
us.is eða i síma 482-1210