Skoða ferð

Draugaferð um Flóann

Stoppað er á vel völdum stöðum í Flóahreppi og á Stokkseyri. Síðan er ekið upp Villingaholtsveg til baka á Selfoss. Meginþema ferðarinnar eru draugar og þjóðsagnapersónur en einn frægasti draugur Íslands varð til á þessu svæði og lifir enn góðu lífi.

Ferðin er á léttum nótum og hefur vakið hefur mikla lukku enda er viðfangsefnið sögumanni hugleikið og margir vilja meina að Móri sjálfur fylgi honum sem verður að teljast líklegt miðað við okkar reynslu af fyrri ferðum.

p>Sögumaður er Þór Vigfússon
Tilvalið að enda í mat á Eyrabakka, Stokkseyri eða á Selfossi.
5 tíma ferð frá Reykjavík.

 

Þessi ferð er upplögð skemmtun fyrir 30 ára og eldri.

Okkar ráðlegging: Áfengi og Draugaferðin eiga ekki samleið nema í hófi (1-3 dósir af mjöð).

<<til baka