Draugasetrið á Stokkseyri hefur vakið feikimikla lukku og í þessari ferð er það hápunktur ferðarinnar. Auk setursins höfum við þann möguleika að hlusta og horfa á listaverkið Brennið þið vitar og heimsækja þá fjölmörgu listamenn sem hafa aðsetur og sýningaraðstöðu undir sama þaki og Draugasetrið. Hópur er sóttur og ekið beina leið á Stokkseyri. Upplagt er að byrja á fordrykk (sé þess óskað) á Draugabarnum. Því næst er farið í Lista og menningarhúsið, hlustað og horft á listaverkið Brennið þið vitar og farið í létta leiki. Einnig er hægt að skoða málverkasýningu hjá Elfari Guðna og listagalleríið ef áhugi er fyrir hendi en allt er þetta undir sama þaki. Hápunktur ferðarinnar er heimsókn í Draugasetrið en það er um 800m2 völundarhús þar sem gestir hlusta á draugasögur um leið og þeir ganga áfram og kynnast þeim sem ganga aftur. Þetta eru 24 stuttar sögur og það tekur um 45 mín. að fara í gegn ef hlustað er á allar sögurnar. Hæfilegir reimleikar í boði hússins. Það er mjög góð móttaka fyrir gesti áður en farið inn í setrið sjálft en þar er Draugabarinn. Skotturnar á barnum bjóða uppá styrkjandi drykki, Móramjólk o.fl. Leyfilegt er að fara með mjöð í dósum sem keyptur er á barnum inná setrið sjálft.
Þetta er 3-5 tíma ferð í heildina (frá Reykjavík) fyrir utan kvöldverð en hægt er að lengja hana enn frekar sé þess óskað. Tilvalið að enda góða ferð með því að fara í Humarveislu á veitingastaðnum Við fjöruborðið (við hliðina á Draugasetrinu) eða að fara í Víkingaskálann í villilambið.
Hægt er að bæta við stuttri draugaferð með leiðsögumanni og eins minnum við á kajakana á Stokkseyri sem viðbótarmöguleika með hækkandi sól.
Brottför til Reykjavíkur þegar allir eru orðnir saddir og sáttir.
Allar nánari upplýsingar: gt@gtbus.is eða síma 482-1210