Kajakferðir frá Stokkseyri
Róið er á kajökum um hin sérkennilegu lón einnar fegurstu fjöru sem Ísland á og vatnasvæðið vestan byggðarinnar á Stokkseyri. Þar tengja þröngar rásir litlar og stórar tjarnir og þrífst þar aragrúi og fugla og jurta. Þar endar líka Flóaáveitan, þetta stórmerkilega mannvirki, sem unnið var á árunum 1918 til 1927 og nær yfir 12 þúsund hektara lands. Gengið hefur verið úr skugga um, í samvinnu við aðila úr Fuglaverndunarfélagi Íslands og Náttúruverndarráði að þessi leið til náttúruskoðunar raskar á engan hátt tilveru dýra og jurta á svæðinu. T.d. má sjá forvitna seli fylgja kajökunum eftir þegar siglt er á lónunum, ótrúlega nálægt, alls óhrædda.
Fyrir utan þessa óvenjulegu leið til að skoða náttúruna eru kajakasiglingar sérlega friðsæl og skemmtileg afþreying, reynsla sem gleymist ekki.
Nokkrar mismunandi ferðir eru í boði:
Skólahópar. ½ klst. (Svaml) Aðstoðarmaður í landi, róið frjálst um takmarkað svæði, Löngudæl. Tilvalið fyrir skólahópa.
Róbinson Krúsó. Ca 1 - 3 klst. án leiðsagnar. Sérlega skemmtilegur möguleiki fyrir fjölskyldur og einstaklinga, þar sem fólk getur kannað á eigin spýtur völundarhús fenjanna. Kort af svæðinu er til sölu í afgreiðslu. Tekið skal fram að svæðið er algjörlega hættulaust.
Challenge. 1 klst. skipulögð ferð með leiðsögn. Tilvalið fyrir 5 til 50 manna hópa. Róið eftir Löngudæl og inn í þröngar rásir fenjasvæðisins. Svæði sem býður upp á skemmtilega stemningu og getur reynt á samhæfni hópsins.
Power Challenge. 2 klst. skipulögð ferð með leiðsögn. Tilvalið fyrir 5 til 50 manna hópa. Róið eftir Löngudæl, inn í þröngar rásir fenjasvæðisins og allt að þar sem Hraunsáin rennur til sjávar. Svæði sem býður upp á skemmtilega stemningu og getur reynt á samhæfni hópsins.
Adventure. 2 klst. sjóferð. Nú er umhverfið allt annar heimur. Skerjagarðurinn með fallegum lónum er heimkynni sela og fugla og lífríkið allt ótrúlega fjölbreytt. Lögð er áhersla á að fólk haldi sig nærri landi með leiðsögumanni. Stórkostleg upplifun! 14 ára aldurstakmark.
Ath. Fólk er vinsamlegast beðið að neyta ekki áfengis fyrir ferðir!! Þeim einstaklingi sem sjáanlega er undir áhrifum áfengis verður neitað um að fara á kajak.