Skoða ferð

Kampholtsmóri

Vegna mikilla vinsælda draugaferðarinnar hefur verið sett upp önnur ferð þar sem nær eingöngu er fjallað um Móra á seinni árum eða á meðan hann bjó í Kampholti og Þingdal. Þessi ferð er sjálfstætt framhald af fyrri ferðinni og er ekið austur framhjá Kampholti og niður með Þjórsá. Eins og í fyrri ferðinni er stoppað á vel völdum stöðum og meðal annars er stoppað í Þingdal en þar bjó Móri til margra ára. Þetta er um þriggja tíma ferð ef allt er með felldu en reynslan hefur sýnt okkur að í þessum ferðum getur allt gerst.


Sögumaður er Þór Vigfússon

KampholtsmóriÞessi ferð er upplögð fyrir 30 ára og eldri.

Tilvalin söguferð fyrir þá fjölmörgu sem fá aldrei nóg af frásagnarhæfileikum Þórs Vigfússonar og vilja kynnast Móra og hans fólki enn frekar. 
Tilvalin ferð fyrir samheldan hóp hvort sem vín er haft um hönd eður ei.

5-6 tíma ferð frá Reykjavík.

<<til baka