Ferðin hefst í Hveragerði þar sem allir skella sér í Aparóluna.
Aparólan er svifbraut sem er strengd yfir fossinn í Hveragerði, brautin er tæpir 80 metrar og nær fólk góðum hraða í brautinni.
Flott afþreying fyrir stóra og smáa hópa.
Eftir svifið í Aparólunni er farið á Stokkseyri í Draugasetrið og í fordrykk á Draugabarinn og svo er upplagt að enda ferðina á einhverjum af veitingastöðunum á ströndinni eins og Fjöruborðinu, Rauða Húsinu eða Hafinu Bláa.
Lengd: 6-8 klst
Lágmark 15 manns