Íslenskar yfirbyggingar

yfirbygging1Hluti hópferðabíla Guðmundar Tyrfingssonar ehf eru hannaðir og smíðaðir hér á landi af starfsmönnum dótturfyrirtækisins Tyrfingssonar ehf.

Myndir af rútum í smíðum

 

yfirbygging2

Fyrsti bíllinn var smíðaður árið 1969 og síðan hafa tugir nýrra bíla verið yfirbyggðir frá grunni en auk þess hafa fjölmargir minni bílar (20 farþega eða færri) verið innréttaðir sem hópferðabílar. Í upphafi voru þeir nafnar Guðmundur Tyrfingsson og Guðmundur Laugdal Jónsson tveir í smíðinni og lengst af í bragga við Hrísmýri á Selfossi. Þar unnu þeir mörg þrekvirkin á sviði bílasmíði og ber þar helst að nefna smíði á 62 farþega bíl árið 1987. Árið 1992 var byggð ný aðstaða fyrir bifreiðasmíðina og viðgerðir, að Fossnesi C Selfossi. Sama ár var Tyrfingsson ehf stofnað til að halda utan um hönnun, smíði og viðhald á öllum hópferðabifreiðum Guðmundar Tyrfingssonar ehf. Fyrirtækið rak jafnframt smurstöð fyrir almenning 1993-2006 ásamt því að sinna tjónaskoðun fyrir tryggingarfélögin.

Árið 2008 var síðasta rútan smíðuð frá grunni hjá Tyrfingsson ehf, en ennþá er verið að innrétta minni rútur.

yfirbygging3Þegar ný hópferðabifreið var smíðuð frá grunni þá var byrjað á að ákveða stærð bifreiðar og hvaða grind væri heppilegust með tilliti til burðargetu og þyngdar. Í hönnunarferlinu var farið vandlega yfir öryggismál en einnig kappkostað að hafa yfirbyggingarnar sem léttastar meðal annars til að halda eldsneytiseyðslu og mengun í lágmarki. Í nær öllum tilfellum var pöntuð ný grind af Mercedes Benz gerð og kom hún með mótor, stýri, drif- og hjólabúnaði.

Þegar grindin kom var oftast nær búið að smíða efri hluta yfirbyggingarinnar enda byrjað á að smíða gluggastykkin og toppinn. Þeim hluta var því næst lyft upp, hliðarnar smíðaðar, grindinni komið fyrir og lokið við að smíða gólf, lestar og hurðir. Þegar prófílgrindin var búin var hún grunnuðyfirbygging4 og máluð, krossviður klæddur í hólf og gólf og að því loknu var komið að því að klæða grindina að utan með áli og stáli. Þegar þessu var lokið var komið að því að mála bifreiðina og að þá fer að koma mynd á verkið. Sæti og gler var flutt inn og síðan 2001voru öll sæti með þriggjapunkta öryggisbeltum fyrir alla farþega, fótskemlum, hallanlegum bökum, hliðarfærslu og öllum þeim búnaði sem eykur öryggi og tryggir þægindi farþega.

Smíðin tók um 8 mánuði fyrir tvo til þrjá menn en að sjálfsögðu er það misjafnt eftir stærð bifreiðar og útbúnaði. Guðmundur Laugdal var yfirsmiður og sá frá upphafi séð um hönnun, teikningar og smíði yfirbygginga ásamt Guðmundi Tyrfingssyni, Grétari Árnasyni og Tyrfingi Guðmundssyni en fleiri starfsmenn hafa líka komið að verkinu í ígripum.

 

yfirbygging5

yfirbygging 6