Umhverfismál
Guðmundur Tyrfingsson ehf. er fyrirtæki sem er meðvitað um mikilvægi þess að íslensk náttúra sem og íslensk menningararfleið haldist eins tær og óspillt og mögulegt er. Það er því stefna okkar að bjóða upp á góða þjónustu, nýjustu og öruggustu bíla sem völ er á og sjá til þess að umhverfis- og öryggismál séu höfð að leiðarljósi í allri okkar starfsemi. Við ætlum okkur að vera í fararbroddi í þessum málum og leitast eftir samstarfi við þá aðila sem láta sig þennan málaflokk varða og hafa mótað sér skíra stefnu í þessum málum.
Stefnu þessari fylgjum við eftir með eftirfarandi stefnumiðum:
-
Starfsmenn eru meðvitaðir og fræddir um umhverfisstefnu fyrirtækisins og umhverfismál almennt.
-
Árlega höldum við námskeið þar sem farið er yfir alla þá umhverfisþætti sem lúta að okkar starfsemi.
-
Við munum stuðla að auknum áhuga á íslenskri menningararfleið með því að sérhæfa okkur í menningartengdri ferðaþjónustu. Þar leggjum við megináherslu á skemmtanagildi íslenskrar menningar.
-
Allt kapp er lagt á að bjóða upp á nýjustu og umhverfisvænustu hópferðabíla sem völ er á. Í dag uppfylla nær allir okkar bílar EURO II staðalinn sem er mengunarstaðall sem gildir fyrir Evrópu. Nýjustu bílarnir uppfylla Euro III sem er enn kröfuharðari.
-
Við munum stöðugt vinna í þessum málum í samræmi við Umhverfisvottun Beluga. Unnið að því að taka upp Umhverfis-öryggis- og gæðastjórnunarkerfi Beluga sem er hið eina sinnar tegundar sem tekur á öllum þessum málaflokkum í eina og sama kerfinu.
-
Flestir hópferðabílar okkar hafa vatnskyndingu (olíumiðstöð) sem gerir það að verkum að hægt er að hita bílvélina upp í allt að 80° áður en vélin er ræst. Þessi búnaður gerir það verkun að bílvélin fer heit í gang sem að þýðir mun minni mengun. Þessi sama kynding er samtengd ofnakerfi bifreiðana þannig að hægt er að halda farþegarými heitu án þess að bílvélin gangi. Við leggjum ríka áherslu á að kynding þessi sé notuð til að halda lausagangi í lágmarki.
-
Við kappkostum að draga úr myndun úrgangs eins mikið og mögulegt er en jafnframt að flokka og endurnýta alla þá hluti sem við höfum mögulega á. Fyrir utan höfuðstöðvar okkar á Selfossi höfum við komið fyrir pappírs- og fernugámum sem við flokkum í fyrir endurvinnslu. Einnig flokkum við að sjálfsögðu brotajárn, rafgeyma og allar aðrar vörur sem mögulegt er að nýta eða að eyða.
-
Við hvetjum starfsmenn til að flokka þessi hluti jafnframt heima fyrir og bjóðum þeim uppá beinan aðgang að okkar flokkunarkerfi.
-
Við höfum fullbúin kennslubúnað fyrir Grænan akstur (Eco driving) í einni hópbifreið. Er það fyrsta hópferðabifreiðin hér á landi sem útbúin er þessum búnaði. Á umhverfisnámskeiði okkar sem við höldum árlega bæði farið bóklega og verklega yfir Grænan akstur með bifreiðastjórunum. Það er mjög mikilvægt að lágmarka mengun og eyðslu bifreiða með réttu aksturslagi.
-
Við kappkostum að hafa snyrtimennsku í fyrirrúmi og vera öðrum til fyrirmyndar. Áhersla er lögð á að hafa bifreiðar í góðu lagi, hreinar og snyrtilegar sem og að olíu og síuskipti séu á réttum tíma til að takmarka óhreinindi í útblæstri sem mest.
-
Öll úrgangsolía er sett í tank sem er niðurgrafinn við verkstæði okkar. Tankur þessi er tæmdur reglulega og olían úr honum nýtt eins og unnt er hverju sinni. Allt kapp er lagt á að engin spillefni fari í niðurföll en ef að slys yrði þá erum við með þrjár olíugildrur við niðurföll á verkstæði okkar sem og í aðstöðuplani.
-
Við leggjum áherslu á að nota umhverfisvænar vörur og halda öðrum vörum í lágmarki. Við leitumst við að kaupa vörur og eða þjónustu af þeim aðilum sem hafa markað sér skýra og helst vottaða stefnu í þessum málaflokk.
-
Umhverfismál eru mál okkar allra, aldrei er nóg að gert og of margt í okkar samfélagi skaðar náttúruna og þar með okkur. Þetta eru dæmi um okkar áherslur og markmið í þessum málaflokki. Þessi mál eru í stanslausri skoðun hjá okkur enda er það skylda okkar að vera meðvituð og opin fyrir öllum leiðum til að draga úr mengun. Við fylgjumst því grannt með þróun umhverfismála og erum vakandi yfir þessum málaflokki, framtíðin er jú í húfi.
Markmið
Umhverfisstefna verður uppfærð og endurskoðuð (árlegt markmið)
Við munum halda árlegt námskeið í umhverfis- öryggis- og gæðastjórnunarmálum sem m.a. innifelur fullgilt námskeið í vistakstri og skyndihjálp (árlegt markmið)
Minnka eldsneytisnotkun um 1.5% á (per kílómetra) með fimmta vistakstursnámskeiðunu og eftirfyglni á því
Umhverfis-öryggis- og gæðastjórnunarstjóri mun auka eftirlit með búnaði í bifreiðum, (öryggisbeltum, sjúkrakassa, umhverfisvænu hreinsiefnum og þess háttar útbúnaði)
Gæðahandbók bifreiðastjóra verður endurskoðuð en hún er í öllum bifreiðum fyrirtækisins þar sem m.a. koma fram stefnur félagsins í umhverfis-öryggis- og gæðamálum (árlegt markmið)
Fara sérstaklega yfir mikilvægi þess að olíumiðstöðvar séu rétt notaðar til að takmarka lausagang og draga úr útblæstri
Umhverfisvænir trefjaklútar verða í öllum bifreiðum félagsins
Til baka
|