Íslenska   English   Deutsch   Fransaise    Chinese
Rútur og Hópferðir Guðmundar Tyrfingssonar

 


Álfar og Tröll  á Icelandic Wonders
Icelandic Wonders Upplifið heimkynni álfa og trölla og sjáið norðurljósin í allri sinni dýrð. Meira


Draugasetrið á Stokkseyri 
hýsir þekktustu drauga á Íslandi. Meira


Aurora Experience 
Upplýsingar um Norðurljósin og Norðurljósa DVD.Meira

Veislusalir til útleigu
Lista og Menningarverstöðin
Veislusalir til útleigu 
Meira

gtbus.is > Um Suðurland     


FORSÍÐA

HÓPFERÐIR

RÚTURNAR

SUÐURLAND

UM OKKUR


Um Suðurland

Um Suðurland
 

Njáluslóðir

Á Suðurlandi eru miklar söguslóðir og þar er Njála í öndvegi. Flestir kannast við sögur um nafnfræga kvenskörunga t.d. Hallgerði langbrók og hetjur sem riðu um héruð svo sem Gunnar Hámundarson á Hlíðarenda. Á Bergþórshvoli bjó Njáll ásamt Bergþóru konu sinni og sonum þeirra. Þar átti sér stað frægasta brenna Íslandssögunnar þegar þau hjón, ásamt flestum nánustu skyldmennum voru brennd inni af óvinum þeirra árið 1011.

Skálholt

Einn kunnasti sögustaður landsins er Skálholt í Biskupstungum. Staðurinn er fyrrum biskupsstóll, en þar var biskupssetur frá 1056 til 1801. Nú situr vígslubiskup staðinn. Margir merkir atburðir tengjast Skálholti, t.d. voru Jón Arason og synir hans hálshöggnir þar árið 1550. Árlegir menningarviðburðir hafa þegar fest sig í sessi í Skálholti og þar stendur nú yfir einn mesti fornleifauppgröftur sem ráðist hefur verið í hér á landi.

Söfn á Suðurlandi

Söfn á svæðinu eru t.d. Byggðasafnið í Skógum sem þykir eitt hið merkasta sinnar tegundar á landinu, Sögusetrið (Njálusýning) á Hvolsvelli, Keldur á Rangárvöllum þar sem er járnvarin timburkirkja sem reist var 1875 og þar er einnig forn skáli sem er elsta bygging sinnar gerðar á Íslandi, Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal, Listasafn Árnesinga í Hveragerði, Þuríðarbúð (gömul verbúð) á Stokkseyri og Sjóminjasafnið og Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka, ekki má svo gleyma Draugasetrinu á Stokkseyri og Álfa, Trölla og Norðurljósasafninu á Stokkseyri.

Á Leirubakka í Landsveit er opið Heklusetur – fræðasetur og sýning um eldfjallið Heklu. Þar er sýning um fjallið, eðli þess og sögu, og miðlað upplýsingum um það til ferðamanna, skólafólks og alls almennings og leiðbeiningar gefnar þeim sem hyggjast ganga á fjallið. Á Leirubakka er einnig starfandi Fræðasetrið á Leirubakka, sem sem sinnir hvers kyns rannsóknum á sögu Rangárþings og miðlar þeim með fundum, ráðstefnum, menningargöngum og útgáfu til bæði ferðamanna og skólafólks.  Fræðasetrið  leggur einnig sérstaka áherslu á hvernig Ísland byggðist á sínum tíma frá Noregi  og hvernig íslenska þjóðin varð til – ekki aðeins frá Noregi heldur einnig með miklum áhrifum frá  eyjunum  við Bretland norðanvert. Á Leirubakka ólst upp sagnfræðingurinn og sagnaþulurinn Guðni Jónsson og er minnisvarði um hann við bæinn. Leirubakki er fornt höfuðból og kirkjustaður og var til dæmis um tíma í eigu Snorra Sturlusonar sagnaritara.

Afþreying

Þessu til viðbótar er ýmis afþreying í boði svo sem golf, handverkshús (gallerí), gönguferðir með leiðsögn, hestaferðir, hestaleiga, fljótasiglingar, kajakleiga, reiðhjólaleiga, sundlaugar, snjósleðaferðir, sjóstangveiði og önnur veiði (silungur, lax, gæs, rjúpa).



Til baka